|
1. bindi í bókaflokki Margit Sandmo - Sandemoserían Anna var einmana barn. Móðir hennar lést þegar hún fæddist og faðirinn, hinn ríki kaupmaður Wardelius, jafnaði sig aldrei á því að hafa ekki eignast son. Anna þjáðist alla bernsku sína og faðir hennar vildi helst að hún væri ósýnileg. En dag einn birtist maður sem gerbreytti öllum högum Önnu. Hún átti ótrúlegt líf í vændum... Þýðing: Snjólaug Bragadóttir Kápa: Imperiet Bókin kemur út 22. júlí 2009. Margit Sandemo er þekktust fyrir bækur sínar um Ísfólkið og tengda bókaflokka. Hún er afkastamikill rithöfundur og á meira en 40 ára ferli sínum hefur hún einnig skrifað fjölda sjálfstæðra skáldsagna. Þetta hafa bæði verið framhaldssögur fyrir tímarit og sjálfstæðar skáldsögur. Fæstar þessara skáldsagna hafa komið út á íslensku. Í fyrsta skipti verða helstu sögur hennar, aðrar en bókaflokkarnir, nú gefnar út á Íslandi. Þetta er einstakt tækifæri til að nálgast sögur ástsælasta rithöfundar Norðurlandanna á einum stað. Fylgist með í Sandemoseríunni frá byrjun og upplifið hinn fjölbreytta skáldsagnaheim Margitar Sandemo.
|