|
2. bindi í bókaflokki Margit Sandmo - Sandemoserían Við Sjúr vorum útskúfuð vegna þess að við vorum öðruvísi. Og við lékum við okkur saman. Seinna misstum við sambandið … en ég gleymdi aldrei æskuvininum. Svo rennur sú stund upp að allt breytist skyndilega fyrir fullt og allt: Ráðist er hrottalega á gamla konu, gerð tilraun til nauðgunar og morðs... Bernskuvinur minn Sjúr er sakaður um glæpinn... Þýðing: Snjólaug Bragadóttir Kápa: Imperiet Bókin kemur út 27. júlí 2009. Margit Sandemo er þekktust fyrir bækur sínar um Ísfólkið og tengda bókaflokka. Hún er afkastamikill rithöfundur og á meira en 40 ára ferli sínum hefur hún einnig skrifað fjölda sjálfstæðra skáldsagna. Þetta hafa bæði verið framhaldssögur fyrir tímarit og sjálfstæðar skáldsögur. Fæstar þessara skáldsagna hafa komið út á íslensku. Í fyrsta skipti verða helstu sögur hennar, aðrar en bókaflokkarnir, nú gefnar út á Íslandi. Þetta er einstakt tækifæri til að nálgast sögur ástsælasta rithöfundar Norðurlandanna á einum stað. Fylgist með í Sandemoseríunni frá byrjun og upplifið hinn fjölbreytta skáldsagnaheim Margitar Sandemo.
|