JENTAS Halldors ApS  

              
  Efst » Vörulisti » Ævisögur » 9979-760-96-6          Skráning  |  Innkaupakarfa  |  Ganga frá pöntun   
Flokkar
Höfundar
Tilboð meira
Ísherrann
Ísherrann
4290,00 kr
100,00 kr
Hraðleit
Viðskiptaskilmálar
Um okkur

Hafðu samband
Uppreisn án landamæra
[9979-760-96-6]
1990,00 kr  390,00 kr

Marc Vachon og Francois Bugingo
Þýð.: Oddný Sen

"Marc Vachon segir frá raunveruleikanum meðal hungraðra og sjúkra. Staðreyndir sem gleymast bak við æpandi yfirskriftir." - Politiken í Danmörku

"Sjálfsævisaga hans er sérlega vel skrifuð ... sterk bók um raunverulega hetju." - Verdens Gang í Noregi

"Sjálfsævisaga án landamæra." - Ny Tid í Noregi

Þetta er sönn frásögn. Saga nútímahetju.
Frásögn af götustráki, skúrki, glæpamanni, eiturlyfjasala og neytanda sem snéri við blaðinu og notar reynslu sína úr undirheimum Montreal til að helga líf sitt hjálparstarfi og mannúðarmálum. Sjálfsbjargarhvöt götustráksins gerir honum kleift að reisa flóttamannabúðir á mettíma og leysa vandamál sem öðrum virðast óleysanleg. Hjá Marc helgar tilgangurinn meðalið. Spennusaga úr raunveruleikanum, frásagnir frá Írak, Bosníu, Zaire, Rúanda, Afganistan og Mosambik sem á köflum líkjast meira sögum um James Bond en sannleikanum.

Peningarnir streyma inn til allskonar hjálparsamtaka. - Hvað verður um þá? Þetta er upplýsandi bók fyrir þá sem hafa áhuga á því að vita í hvað peningarnir fara sem gefnir eru til hjálparstarfa víða um heim. Þetta er spennandi og sönn frásögn Marc Vachon um líf sitt og starf m.a. fyrir Lækna án landamæra. Hvernig fer starfið fram í raunveruleikanum? Hvað gerist á bak við tjöldin? Hvað fáum við aldrei að vita? Frásögn um valdabaráttu og samkeppni sem stundum ríkir á milli hjálpar- og mannúðarstofnanna, hvernig skrifræðið getur stöðvað hjálp til fólks í neyð. Það hefur hann aldrei getað sætt sig við. Slík helst alltaf í hendur við óréttlæti. Athyglisverð innsýn inn í heim alþjóðlegs hjálparstarfs dagsins í dag þegar fréttir eru bornar fram eins og hver önnur afþreying og skemmtun.

Marc Vachon er fæddur 1963 í Montreal. Hann var yfirgefinn af móður sinni sem ungabarn. Munaðarleysingi sem þekkti aldrei foreldra sína. Ólst upp við slæm kjör í Montreal, götustrákur og glæpamaður. Eins og tekið upp úr sögu eftir Charles Dickens. Fyrir tilviljun kynntist hann starfsemi Lækna án landamæra og snéri við blaðinu. Hans fyrsta verkefni í Afríku var að hafa umsjón með uppbyggingu kóleruspítala í Niaminthutu í Malaví. Marc komst að því að hann hafði góða skipulagshæfileika og einstaka reynslu frá undirheimum Montreal til að hjálpa lítilmagnanum og veita neyðarhjálp. Marc gerðist líka ævintýramaður, þar sem hann vílaði ekki fyrir sér að falsa skjöl til að sjá Kúrdum fyrir olíu í Persaflóastríðinu og ferja vörubíla hlaðna hjálpargögnum og nauðsynjum yfir landamærin milli Tyrklands og Kúrdistan. "En ég var ekki lengur svartur riddari á svörtu Harleyhjóli í Montreal, heldur hvítur riddari á hvítu Harleyhjóli í Írak. Ég var eins konar Hrói Höttur, stal frá ríkum Írökum til að geta gefið blásnauðum Kúrdum." Eftir verkefnið í Malaví fylgdi fjöldi verkefna: Írak eftir fyrra Persaflóastríðið, Mosambik, Súdan og Rúanda þar sem hann varð vitni að þjóðarmorðunum frá fyrstu hendi og varð fyrir miklu áfalli yfir aðgerðarleysi háttsettra herforingja sem földu sig á bak við skipanir yfirmanna sinna.

Marc leggur sig allan fram, svolítið galinn, gjafmildur og hugrakkur. Hann elskar fótbolta, mótorhjól og konur - ekki endilega í þessari röð. Fyrir Marc skiptir öllu máli að vera nytsamur öðrum, að reisa stórar flóttamannabúðir á mettíma, nokkrum klukkutímum, að gefa þyrstu fólki af stríðshjáðum svæður vatn að drekka, að koma lífsnauðsynjum í gegnum lífshættulega vegatálma og stýra fram hjá fyrirsátum stríðandi fylkinga. Í stuttu máli að hjálpa þurfandi.

Nýlega var hann í Banda Aceh á Súmötru að reisa skóla fyrir UNICEF eftir tsunami flóðin miklu. Um þessar mundir (des. 2006) vinnur hann sem yfirmaður vatns-, hreinsunar- og hreinlætismála (Water, Sanitation and Hygiene - WASH) hjá UNICEF í mið og vestur Afríku með aðsetur í Dakar - Yoff, Senegal.

Grípandi bók um Marc Vachon, manninn sem gerðist verkefnastjóri hjá Læknum án landamæra en hefði allt eins getað eitt ævinni í fangelsi fyrir ofbeldi og eiturlyfjasölu. Síðastliðinn 17 ár hefur hann unnið hjálparstörf á stríðshrjáðum svæðum víða um heim. Marc Vachon er sannkallaður uppreisnarmaður án landamæra og samtímahetja.

Um Francois Bugingo:
http://www.operationspaix.net/BUGINGO-Francois

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Molar um Marc og bókina
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Bókin kom út í Kanada (á frönsku) og í Frakklandi haustið 2005.
Búið er að selja útgáfuréttinn til Bretlands/Bandaríkjanna en bókin er ekki komin út á ensku (des. 2006).

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Bókin fær 4 1/2 stjörnu á amazon (ath þetta er franska amazon):
http://www.amazon.fr/Voyage-bout-lhumanitaire-Marc-Vachon/dp/2707146811
http://www.amazon.fr/exec/obidos/ASIN/2707146811/deliriumlejou-21/402-7222870-1584902?%5Fencoding=UTF8&camp=1642&link%5Fcode=xm2

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Slóð á brot úr 9. og 16. kafla í enskri þýðingu:
http://editeur.ca/onix/photos/boreal/pdf/24_Rebel%20without%20Borders%202.pdf

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Kynningarsíða Boréal á frönsku útgáfu bókarinnar:
Enska: http://www.editionsboreal.qc.ca/fr-result_isbn.php?id=1356&FOREIGN=&lang=en
Franska: http://www.editionsboreal.qc.ca/fr-result_isbn.php?id=1356&FOREIGN=&DESC=EN

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Viðtöl við Marc:
http://press.jentas.is/?Uppreisn_%E1n_landam%E6ra:Vi%F0t%F6l_vi%F0_Marc

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Vinirnir í Montreal
http://press.jentas.is/?Uppreisn_%E1n_landam%E6ra:Vinirnir_%ED_Montreal

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Hjálparstarf í Írak 1990 - 1992 og 2003:
http://press.jentas.is/?Uppreisn_%E1n_landam%E6ra:Hj%E1lparstarf_%ED_%CDrak

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Umsátrið um Sarajevo 1993:
http://press.jentas.is/?Uppreisn_%E1n_landam%E6ra:Ums%E1tri%F0_um_Sarajevo

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Áfallastreita og þjóðarmorðin í Rúanda:
http://press.jentas.is/?Uppreisn_%E1n_landam%E6ra:%C1fallastreita_og_%FEj%F3%F0armor%F0in_%ED_R%FAanda

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Die Johanniter:
http://press.jentas.is/?Uppreisn_%E1n_landam%E6ra:Die_Johanniter

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - 

Ástandið á Súmötru eftir Tsunami flóðin miklu. Marc einn af heimildarmönnum:
http://redcross.org.sg/sumatraquake_news300305_ddo.htm

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -  

Water, Sanitation and Hygiene (WASH):
http://www.unicef.org/wes/index_28268.html

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -  

Kvikmynd um Marc:
http://press.jentas.is/?Uppreisn_%E1n_landam%E6ra:Kvikmynd_um_Marc

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Um Marc í franskri Wikipediu:
http://fr.wikipedia.org/wiki/Utilisateur:Sherbrooke/Marc_Vachon

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Bókin kom út föstudagur 01. desember 2006.
Dómar
Innkaupakarfa meira
0 bækur
Nýlegar bækur meira
Sandemoserían 09 - Bergnumin
Sandemoserían 09 - Bergnumin
1390,00 kr
Upplýsingar um höfund
Marc Vachon
Aðrar bækur
Söluhæstu
01.Ísherrann
Segja vini frá


Segja einhverjum sem þú þekkir frá þessari vöru.
Dómar meira
Skrifa dómSkrifa dóm!
Gjaldmiðlar
Copyright © 2010 JENTAS
Powered by osCommerce