JENTAS Halldors ApS  

              
  Efst » Vörulisti » Um okkur          Skráning  |  Innkaupakarfa  |  Ganga frá pöntun   
Flokkar
Höfundar
Hraðleit
Viðskiptaskilmálar
Um okkur

Hafðu samband
Um okkur Um okkur
JENTAS BREYTIR UM NAFN.

Allt annað óbreytt.

PP Forlag nú JENTAS var stofnað fyrir 8 árum í Danmörk og á Íslandi samtímis. Síðan hafa bæst í hópinn fleiri Norðurlönd og nú er svo komið að við gefum einnig út bækur í Noregi og Svíþjóð.

Árið 2005 var ákveðið að breyta nafni fyrirtækisins í JENTAS í öllum löndum. PP Forlag var hugsað bráðabirgðaheiti þar til hið fullkomna nafn var fundið.

JENTAS er ný yrði sem getur þýtt margt. Á norsku er jenta stelpa, á jiddísku er yenta hjúskaparmiðalari, gömul og klók kona og á ensku er orðið notað til að lýsa íhlutasömum einstaklingum (slangur). Allar þessar merkingar lýsa því hvað mér finnst um fyrirtækið.við erum spennt eins og lítil börn í leik við að miðla hjúskap milli höfunda og lesenda og alltaf á þönum að láta eitthvað gerast. Ég er stolt af nafninu og í náinni framtíð gefum við út bækur undir þessu nafni á fjórum tungumálum, íslensku, dönsku, norsku og sænsku.

Útgáfuárið 2006 er mjög spennandi ár hjá okkur.

Má þarf fyrst nefna að við höldum áfram með útgáfu á bókaflokknum SAGAN AF ÍSFÓLKINU. Þessi bókaflokkur er gefin út á Íslandi og í Danmörk samtímis. Ég ákvað að láta gera nýjar teikningar á kápu og þýða bókina upp á nýtt.
Við gáfu út fyrstu 2 bækurnar í þessari 47 bóka flokki fyrir jólin sem gerði alveg stormandi lukku. Ætlunin er að gera út 6 bækur til viðbótar á þessu ári. Snjólaug Bragadóttir þýðir.
Að auki koma út 3 spennubækur í sérflokki sem allar verða gefnar út í kilju og verða á mjög viðráðalegu verði.
Það er SÁ SEM VALDIÐ HEFUR eftir Robert Dugoni. SAKLAUS eftir hinn markverðlaunaða sakamálahöfund Harlan Coben og RÉTTLÁTIR MENN eftir Sam Bourne. Bækurnar eftir Dugoni og Bourne koma út á vormánuðum 2006 á ensku stutt áður en íslensku bækurnar koma út.

Þriðja og næst síðasta bókin úr bókaflokknum um ÁVÍTARANN eftir Lene Kaaberböl (höfund um galdrastelpurnar) í einstakri þýðingu Hilmars Hilmarssonar, kemur út í haust.

Síðast en ekki síst hin magnaða bók UPPREISNARMAÐUR ÁN LANDAMÆRA efir Marc Vachon, um líf hans og störf fyrir Lækna án landamæra. Grípandi frásögn um það óréttlæti, sóun og spillingu sem stafsmenn hjáparsamtaka verða að horfast í augu við á hverjum degi í starfi sínu. Þetta er einnig frásögn um hvernig Vachon notaði reynslu sína sem götustrákur og svindlari til að vinna gegn óréttlætinu og hjálpa þjáðu fóli í nauð.

Sigrun Halldors, Framkvæmdarstjóri

JENTAS

Halldors ApS
Áfram
Innkaupakarfa meira
0 bækur
Nýlegar bækur meira
Galdrameistarinn 13 - Klaustrið í Táradal
Galdrameistarinn 13 - Klaustrið í Táradal
1790,00 kr
Söluhæstu
01.Ísherrann
02.Ísfólkið 01 - Álagafjötrar
03.Ísfólkið 02 - Nornaveiðar
04.Ísfólkið 04 - Vonin
05.Ísfólkið 03 - Hyldýpið
06.Ísfólkið 05 - Dauðasyndin
07.Ísfólkið 06 - Illur arfur
08.Sandemoserían 01 - Barn einsemdarinnar
09.Sandemoserían 02 - Tár næturinnar
10.Ísfólkið 08 - Dóttir böðulsins
Dómar meira
Engir dómar fundust
Gjaldmiðlar
Copyright © 2013 JENTAS
Powered by osCommerce